Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

i´m special

Ég er sérstök. Ég veit það að hver og einn er sérstakur á sinn hátt. En ég er mjög sérstök. Þeir vita það sem þekkja mig, og ekki bara það að ég sé sérstök, heiti ég mjög sérstöku nafni. Ég er eina Elín Frímannsdóttir í öllum heiminum geiminum. Sérstakt? Mér finnst það. 

Við vorum alltaf þrjár pæjurnar. Ég, amma heitin og einhver mjög merkileg kona á Akranesi. Hún var fjör gömul tjéllan, og ef maður skrifar Elín Frímannsdóttir í google, koma örfáir tenglar um mig og allir hinir milljón um hana. Ekki það að ég og amma séum ekki merkilegar. En þessi kona gerði margt um ævi sína, og hún var löng, fædd 1924. Vildi að elskulega amma mín hefði fengið svona lang ævi.

Ég læt mynd fylgja okkur stöllum með. Öllum Ellunum þrem.

GOBEIE8KAmmanýja hárið 004       

Ellur Frímannsdætur...

 Ég hef ekkert sérstakt að segja frá, ætlaði bara að láta ykkur vita af þessu. Fannst þetta merkilegt. En þeir sem þekktu Elínu Frímannsdóttur frá Akrensi sem eru að lesa þetta, þið fáið mínar samúðarkveðjur. Alltaf sárt að missa ástvin!

En ég er þyrst. Ætla að fá mér að drekka. blee

(www.myspace.com/helgik)

Kallinn komin á myspace að finna sér nýja kéllu.. haah! 

--Hann neitar því þó alfarið-- 

 


haah!

Hversu mikil gufa getur einn maður verið ??

Þetta er sko linkur hér að ofan. híhí 

 

Var að setja inn ný lög í tónlistarspilarann... MEGA ÝKT COOL LÖG!

 

Lagað síðan til á síðunni, setti nýtt þema, sem er btw ARSENAL þema bara með mynd frá mér. Helgi ætti að vera sáttur. Bætti líka inn uppskriftum af kokteilum og svona, rosa gott að sjá um það í þynkunni. Þó svo ég sé nú ekki þunn núna. En jesús minn eini í dag. Sjoppan hefur örugglega angað af ælulykt í bland við pulsulyktina. Eðal fýla þar á ferð! jummy.

 

Annars er ég með ýkt sniðugt kommentakerfi hérna á síðunni og ýkt flotta gestabók. l0l 

Ég ætla bara að kveðja núna, og ekki gleðileg jól, svo Karen Helga fái ekki fyrir hjartað.

Ella ælupési. Var það ekki það sem þu kallaðir mig Helgi? heeh! 


24 daga til jóla :O

Sjæsen! Mér finnst ég svo ýkt ný búin að kaupa kaffikönnuna sem ég gaf mömmu og pabba í jólagjöf í fyrra að mér finnst eins og það hafi verið í dag! Ný búin að veltast um í heilan mánuð og hugsa og hugsa hvað ég á að gefa Helga í jólagjöf og sömuleiðis hvað mig langar í, í jólagjöf. Sjæsen!

Núna þessa viku er ég búin að vera á fullu að hlusta á jólalög. Hvernig stendur á því, að lang flest jólalögin segi að jólin séu í kvöld? Það er ekki eins og við íslendingar hlustum bara á jólalög á aðfangadag. Ef sumir mættu ráða þá væri þessi lög í útvarpinu allt árið um kring, nema þá væru þetta ekki jólalög. Bara e-ð annað. Leiðinleg lög.

Desember gekk í garð í dag, ásamt sínu fasta fylgiliði. Stressi, seríum, jólakökulykt og ajaxlykt. Mmmmmm. Svo gaman. Ég sjálf, var stressuð í dag því ég ætlaði að gera svo mikið í dag, ég setti seríu á hríslurnar hennar mömmu, sem hún var svo dugleg að gróðursetja hérna í sumar í 15 m/sek og rigningu, ég bakaði og þreif líka! hah. Ég er jólameistari. Náði þessu öllu í dag. 

Ég er ein heima. Og nei það verður ekki partý. Þó mig langi óótrúlega mikið að hafa partý, sem ég btw má, því mamma sagði við mig fyrir nokkrum vikum síðan að ég mætti alveg bjóða nokkrum vinum hingað heim á meðan þau væru úti. Næs. En Guðrún í sjoppunni kom og spurði mig hvort ég vildi ekki koma og vinna á laugardagskvöldið frá 8-11 og á sunnudaginn frá 10-14. Og auðvitað sagði ég já. Svo ég geti nú gefið fallega jólapakka í ár. Því ég á 12 þúsund krónur í péningum og ég á eftir að kaupa jólapakka handa mömmu og pabba, Helga, Guðna og Iðunni og KAREN HELGU! (ekki segja nei karen helga, mig laangar að gefa þér! þú átt það svo ofboðslega mikið skilið) Svo ég þarf á þessum pening að halda.

En frjáls framlög eru vel þegin inná reikning í Sparisjóð Þórshafnar og Nágrennis.

Reikningsnúmer 1129-26-060145

Með fyrirfram þökk. 

Elín Blanka Frímannsdóttir & Gleiðileg Jól. hahh!


« Fyrri síða

ÉÉÉÉG

Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Ég heiti Elín, yfirleitt kölluð Ella, en kemur fyrir að ég sé kölluð fokkfeis :) Ég á heima í Sandgerði, en stunda nám í Framhaldsskólanum á Laugum. Ég er 88 model. Ég á yndislegann kærasta sem heitir Helgi, hann er 86 model og er fæddur og uppalinn í Sandgerði.

Spurt er

Hvort er það ?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband